Starcodes Academy

Við styðjum þig við að umbreyta lífi þínu

Við erum Alma og Hrabbý og

við erum Starcodes skólinn

Starcodes skólinn styður jörðina og mannkynið á uppstigningarferðalagi sínu með því að efla fólk til að ná æðstu möguleikum sínum og lifa sinn tilgang, með ljóskóða og æðri leiðsögn sem okkar lykil tæki.

Stofnendur

Starcodes skólans

Starcodes skólinn var skapaður af Ölmu og Hrabbý snemma árs 2020 eftir að Hrabbý byrjaði að miðla ljóskóðum frá hinu forna Atlantis. Þeim var sagt af verum ljóssins að þær þyrftu að vinna frekar með ljóskóðana og byrjuðu því afla sér frekari upplýsinga með því að miðla efni frá Metatron erkiengli og öðrum ljósverum. Fljótlega kom í ljós að um var að ræða kerfi sem þær voru beðnar um að nýta til að styðja aðra við að umbreyta lífi sínu og lifa sinn æðsta tilgang. Þetta leiddi þær Ölmu og Hrabbý á 18 mánaða ferðalag þar sem þær miðluðu fræðsluefni, hugleiðslum og öðru efni fyrir níu mánaða prógramm.

Gildin okkar

Við eflum þátttakendur okkar til að umbreyta tilveru sinni í gegnum heiðarlega speglun, heilun, sköpun og (sam)tengingar.

Heilindi

Heilindi eru lykilatriði í allri sjálfsvinnu og þróun.

Umbreyting

Persónulegri umbreytingu er náð í gegnum heilun, sjálfsspeglun, sköpun og fjölbreytileika sem gerir okkur kleift að upplifa gleði, velsæld og okkar eigin mikilfenglega (eða stórbrotna) kraft.

Tenging

Sönn tenging við okkur sjálf, æðri leiðsögn og allt sem er færir okkur sanna tilfinningu þess að tilheyra og sterkan sjálfskærleik.

Viðburðir á næstunni

Hér getur þú séð næstu viðburði á vegum Starcodes skólans.

Kynning á Þín persónulega umbreyting

Langar þig að halda af stað í ferðalag persónulegra umbreytinga og uppgötvana?

Þá gæti námskeiðið Þín persónulega umbreyting hjá Starcodes Academy verið eitthvað fyrir þig. Komdu á kynningarfund miðvikudagskvöldið 10. apríl yfir Zoom og sjáðu hvað hjartað þitt segir þér.

Viltu heyra frá okkur?

Með því að gerast áskrifandi að fréttabréfinu okkar getur þú fylgst með starfseminni hjá okkur, séð hvaða námskeið og viðburðir eru á döfinni á næstunni, séð hvenær við birtum nýjar greinar og myndbönd á blogginu okkar. Við hvetjum þig til að gerast áskrifandi og taka þátt í ferðalaginu með okkur.

Við elskum að fjalla um áhugaverð viðfangsefni tengd persónulegri umbreytingu, andlegum málum og þeirri áskorun sem við stöndum öll frammi fyrir að vera andlegar verur í jarðneskum líkama. Við hlökkum til að tengjast þér betur!

Bloggfærslur

Viltu vita meira? – Komið í vefverslun!

Viltu vita meira? – Komið í vefverslun!

Dagana 11.-13. mars síðast liðinn buðum við upp á námskeiðið Viltu vita meira? á Zoom en þar fjölluðum við um tengingar við ljósverur og hvernig þær geta hjálpað okkur í okkar daglega lífi. Allt í kringum okkur eru kærleiksríkar ljósverur sem vilja svo gjarnan fá að...

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Leiðsögukonurnar gerðu þetta einstaklega vel, af mikilli næmni á hópinn. Allt var mjög skipulagt, notalegt og gott. Ég fæ ekki séð að það hefði verið hægt að gera það betur.

Elínborg

Í dag horfi ég fram á veginn, finnst ég ekki eins föst í farinu. Breytt viðhorf gagnvart öðru fólki. Finnst alltaf vera að upplifa meira og meira.

Dagný

Ég er svo miklu ánægðari og hamingjusamari með mitt líf í dag sem smitar til barna og barnabarna minna. Gagnvart vinum þá hafa sumir á orði að ég sé breytt til hins betra, mun jákvæðari, brosmildari og öll hressari. Þeir sem vita að ég fór á þetta námskeið sjá að það gerði mjög góða hluti fyrir mig.

Guðrún María