Við deilum Jörðinni með fjölmörgum verum og fjölbreyttri orku í ólíkum víddum. Við elskum að tengjast þessum verum, þar sem þær ganga nú í gegnum sitt uppstigningarferli rétt eins og við og Jörðin sjálf. Náttúruverurnar, eins og við kjósum að kalla þær, eru afar kærleiksríkar og vilja gjarnan tengjast okkur, þar sem orka okkar og virk samvinna getur reynst öllum afar vel.
Hver hópur náttúruvera hefur sitt sérstaka hlutverk. Sumar eru verndarar fjalla, aðrar vinna með ley línur (orkulínu Jarðar), enn aðrar vinna með jafnvægi Jarðarinnar og sumar vinna sérstaklega með trjám, plöntum, dýrum, steinum og svo framvegis. Það er mögnuð upplifun að tengjast þessum yndislegu verum ólíkra vídda og falleg orka þeirra hefur heilandi áhrif, ekki einungis á okkur heldur á Jörðina líka. Þegar við tengjumst og leggjum saman fjölbreytta orku okkar allra getur mögnuð heilun átt sér stað, fyrir okkur sjálf, náttúruverurnar og Jörðina.
Við getum stutt náttúruverurnar með því að bjóða þeim heilunarorku okkar, bæði til að heila náttúruna sem og hjálpa verunum í sínu uppstigningarferli. Meirihluti mannkyns hefur fyrir löngu misst tengsl sín við þessar verur og er því ekki meðvitaður um þau áhrif sem gjörðir mannanna hafa á aðrar víddir hér á Jörðinni. Það er því mikilvægara en nokkru sinni fyrr að við leggjum okkur fram við að tengjast þeim aftur, sendum þeim ljós og kærleika og ræðum við þau um fyrirætlarnir okkar hér á Jörðinni.
Hefur þú einhverja reynslu af náttúruverum? Deildu þeim með okkur á @starcodesisl eða http://www.instagram.com/starcodesisl.