Að hafa góða jarðtengingu er eitt það mikilvægasta sem við getum gert til að hjálpa okkur í gegnum þær miklu orkubreytingar sem oft eru kenndar við uppstigningu jarðarinnar, því góð jarðtenging hjálpar okkur að finna stöðugleika og öryggi á meðan að vitund okkar vex bæði upp á við og út á við.
Þegar við tökum fyrstu skrefin á andlegri vegferð okkar getur verið svo gott að leyfa sér að fljóta í burtu í gegnum tenginguna og upplifa þá stórkostlegu tilfinningu sem því fylgir. Það eru óendanlega margir heimar, víddir og orkur sem hægt er að skoða og við viljum bara svífa hærra og hærra. Á þessu tímabili gæti okkur jafnvel þótt meðvituð tenging við jörðina íþyngjandi og fundist hún hamla okkur við að fljóta áfram og ferðast lengra. Flest þekkjum við þessa tilfinningu vel, sérstaklega frá því að við hófum okkar andlega ferðalag. Í gegnum allt þetta ferli er þó afar mikilvægt að við minnum okkur á að við erum andlegar verur í jarðneskum líkama og við erum komin hér til að upplifa jarðneska reynslu.
Það að víkka vitundina felst nefnilega ekki bara í því að ferðast hærra og hærra upp, heldur líka lengra út og jafnvel dýpra niður, allt inn í kjarna Móður Jarðar. Lykillinn að því að víkka vitundina er einmitt að halda jarðtengingu, að sökkva akkerinu djúpt niður í jörðina svo við getum flogið hærra og víðar en nokkru sinni áður.
Við erum hér í þessu lífi til að upplifa þéttleikann í jarðneskum líka og hvernig líkaminn er tengdur þessari fallegu móður sem við öll tilheyrum. Þetta getur reynst mörgum erfitt og þá sérstaklega stjörnufræjum (starseeds) sem eiga fáar (eða engar) fyrri jarðvistir að baki. Þetta höfum við sjálfar reynt og getum því hiklaust sagt að dagleg jarðtenging er sérstaklega mikilvæg fyrir þennan hóp sálna.
Í raun er veru er þetta afar einfalt. Ef það væri bara einn hlutur sem þú ættir að gera á hverjum degi til að styðja við þig í lífinu (og á andlegu vegferðinni þinni) þá er það jarðtenging. Að tengjast jörðinni er einfalt, fljótlegt (um leið og þið eruð komin upp á lag með það) og getur hjálpað þér á svo marga ólíka vegu. Góð jarðtenging hjálpar okkur að finna innri ró og vera í betra jafnvægi yfir daginn. Hún færir okkur einnig betri einbeitingu, öryggi og kraft til að sinna því sem við þurfum að sinna yfir daginn. Góð jarðtenging aðstoðar okkur einnig við að tengjast hjartaorkunni okkar, tengjast kærleikanum. Þetta er eins og að vera umvafin hlýju, móðurlegu faðmlagi í gegnum daginn.
Þegar kemur að andlegri iðkun, er helsti kostur góðrar jarðtengingar sá að hún veitir okkur þann eiginleika að skilja betur það sem við erum að upplifa og fella þá visku sem í upplifunni felst inn í okkar daglega líf. Þannig sáum við fræjum skilning í jörðina sem munu smám saman verða að okkar eigin dásamlegu visku og skilningi á lífinu.
Þetta eru einungis nokkrir augljósir kostir góðrar jarðtengingar en það er einnig svo miklu fleira sem við getum fengið frá Móður Jörð þegar við erum tilbúin að opna okkur, tengjast henni markvisst og finna hvernig við erum raunverulegur hluti af henni.
Í hvert skipti sem við tengjumst Móður Jörð í gegnum jarðarstjörnuna með því að mynda rætur ofan í jörðina, mynda ljóssúlu niður í miðju jarðar eða á hvern þann hátt sem við kjósum að jarðtengja okkur, styrkjum við þessa mögnuðu tengingu. Við þurfum orku hennar, stuðning og styrk á bak við okkur í lífinu. Í gegnum virka jarðtengingu getum við einnig gefið Jörðinni til baka með því að senda henni ljós og kærleika.
Móðir Jörð hefur svo mikinn styrk, stöðugleika, kraft og ró – allt á sama tíma. Hún vill fá að deila gjöfum sínum með okkur ef við tengjumst henni meðvitað.
Svo jarðtengdu þig á hverjum degi! Til að ná dýpri tengingu er gott að ganga berfætt á jörðinni, leggjast niður og finna hvernig jarðarorkan streymir inn í líkamann þinn. Hvernig tengist þú Móður Jörð? Við viljum gjarnan fá að heyra þínar pælingar og reynslu í gegnum samfélagsmiðlana okkar (@starcodesisl, http://www.instagram.com/starcodesisl og YouTube). Sjáumst þar!