Engla Reiki

Meðferðaraðilar

Engla Reiki Meðferðaraðilar

Engla Reiki

Meðferðaraðilar

Eftirfarandi meðferðaraðilar bjóða upp á Engla Reiki heilun. Við hvetjum þig til að hafa samband við þann meðferðaraðila sem þú finnur tengingu við og prófa þessa mögnuðu heilunaraðferð!

Auðunn Karlsson

Auðunn Karlsson

Engla Reiki meðferðaraðili

Ég lærði Engla Reiki 1 og 2 í maí 2023 og fannst það mögnuð orka og nýr veruleiki sem opnaðist fyrir mér, þar sem ég hef aldrei sinnt mínum andlegu málum fyrr en núna, en samt sem áður alltaf verið mjög meðvitaður um að einn daginn muni andlega hliðin taka stóran þátt í mínu lífi. Núna er ég kominn á það skeið að mig langar að bjóða fólki upp á heilun í Engla Reiki og efla mig í leiðinni til að auka minn styrk og deila frábærri heilunarorku til þín.

Netfang: ausi310185@gmail.com
Sími: 8466160
Staður: Reykjavík

Birna O. Björnsdóttir

Birna O. Björnsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég heiti Birna og er OPJ þerapisti og Reiki meistari. Hef einnig lokið 1. stigi í CST höfuðbeina- og spjaldhryggjar-meðferð, lauk 3. stigi í Usui Reiki, 4. stigi í Karuna Reiki og síðast en ekki síst 4. stigi í Engla Reiki. Allt er þetta ólíkt en vinnur svo vel saman. Hef frá því ég man eftir mér elskað engla og vinn ég með þeim ásamt öðrum góðum verum.

Netfang: birnaob@gmail.com
Sími: 8630179
Staður: Reykjanesbær

Einar Gíslason

Einar Gíslason

Engla Reiki meðferðaraðili

Ég hef tekið námskeið í þjálfun miðilshæfileikans og transheilun hjá Ásthildi Sumarliðadóttur miðli. Ég hef einnig stundað hjálpar- og heilsumiðlun bæði á bekk og í fjarheilun og er ég tilbúinn að taka við beiðnum um aðstoð. Ég tók námskeið í Engla Reiki 1 og 2 í október 2023 og mun síðan taka stig 3 og 4 í mars 2024. Ég er að þjálfa mig í Engla Reiki og ekki hika við að hafa samband ef þú vill fá tíma hjá mér.

Netfang: einar.gislason@gmail.com
Sími: 8933607
Staður: Sauðárkrókur

Inga Birna Friðjónsdóttir

Inga Birna Friðjónsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég féll fyrir Engla Reikinu árið 2021 og hef lokið stigum 1-4 hjá Ölmu síðan í nóvember 2022. Ég hef einnig lært Dáleiðslu til fyrri lífa hjá Vigdísi Steingrímsdóttur og vinn stundum með hana samhliða heiluninni. Ekki hika við að hafa samband ef það kallar á þig.

Netfang: ingabirnaf@gmail.com
Sími: 6990684
Staður: Reykjavík

Laufey Fjóla Hermannsdóttir

Laufey Fjóla Hermannsdóttir

Engla Reiki meðferðaraðili

Ég er með BA-gráðu í félagsmálafræðum en er eingöngu að starfa heima. Býð upp á transheilanir 60 mín tíma og Ayurveda nudd með transheilun 90 mín tíma og er að nýta Engla Reiki með í því. Ég tek við pöntunum á mínu nafni á Facebook.

Netfang: lulla1970@hotmail.com
Sími: 8962860
Staður: Grindavík

Oddfreyja H. Oddfreysdóttir

Oddfreyja H. Oddfreysdóttir

Engla Reiki meistari

Ég hef lokið Engla reiki, Fyrrilífa dáleiðslu, RTT dáleiðslu, Reiki og höfuðbeina- og spjaldhryggjar-meðferð. Ég hef alltaf haft áhuga á að hjálpa fólki á óhefðbundin hátt og trúað á engla alla tíð en eftir að engill kom til bróður míns þegar hann slasaðist sem barn og aftur eftir að mamma dó og hann bæði kvalinn líkamlega og andlega var enginn efi. Ég tala við engla á hverjum degi því þeir hafa hjálpað mér ófáu sinnum og ég finn það alltaf í hjartanu þegar þeir samþykkja beiðni mína. Ég er bæði á Facebook og á noona appinu undir Dáleiðsla og heilun Oddfreyju.

Netfang: oddfreyja@gmail.com
Sími: 6932993
Staður: Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður

Sigurveig Sumarrós (Rósa) Bergsteinsdóttir

Sigurveig Sumarrós (Rósa) Bergsteinsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég vinn með OPJ Orkupunktajöfnun, Engla Reiki, heilun og íslenska blómadropa frá Kristbjörgu Elí. Ég lauk námi í OPJ árið 2019, Engla Reiki 1&2 2021, Engla Reiki 3&4 árið 2022 og Blómadropaskóla Kristbjargar Elí vorið 2022.

Netfang: sseb@simnet.is
Sími: 8214637
Staður: Akureyri/Vaðlaheiði

Sonja Arnars

Sonja Arnars

Engla Reiki meistari

Ég heiti Sonja og er Engla Reiki meistari, svæðameðferðaraðili og yin yoga nidra djúpslökunar kennari. Heilun hef ég ávallt notað við mín störf í svæðameðferðinni sem ég lærði 2009 og nú síðustu ár á námskeiðum mínum í djúpslökuninni. Ég hef farið á allskonar námskeið í heilun og er reikimeistari fyrir, en ekkert hefur verið eins fullkomið fyrir mig og Engla Reiki heilunin, ég fann minn stað í heilun þegar ég kynntist Engla Reikinu og ég elska að vinna í þessari fallegu orku. Hún þroskaði mig persónulega og það er ótrúlega fallegt að sjá áhrif þessarar heilunar á fólk. Ég er staðsett við Hveragerði og býð þig hjartanlega velkomin til mín.

Netfang: vitund28@gmail.com
Sími: 8981597
Staður: Hveragerði

Svanborg (Svana) Svanbergsdóttir

Svanborg (Svana) Svanbergsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég lærði Reiki heilun fyrir 20 árum síðan. Svo þegar ég sá auglýst Engla Reiki námskeið þá stökk ég til því englar hafa alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og fór ég á námskeið hjá Ölmu 2021 og tók öll stigin, það átti mjög vel við mig. Ég er einnig með gong og býð upp á gongslökun í framhaldi af Englaheiluninni ef áhugi er fyrir því. Athugið að best er að hringja til að panta tíma.

Netfang: svana59@gmail.com
Sími: 8203492
Staður: Akureyri

Svandís Þorsteinsdóttir

Svandís Þorsteinsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég er fædd og uppalin í Svarfaðardal/Dalvík. Gift og á 3 uppkomin börn. Ég er með BA í heimspeki. Ég hef lokið Engla Reiki námskeiði 1-4. Ég hef einnig lokið öllum 5 grunnnámskeiðum í höfuðbeina- og spjaldhryggjar meðferð, ásamt barnanámskeiði 1, Touching the brain 1 og orkunámskeiði, sem og verið aðstoðarkennari á CST1 og 2, tveimur fyrstu námskeiðunum í HBS. Ég býð einnig upp á fjarmeðferðir, hreinsa íbúðir, umhverfi og óþægilega orku frá fólki, einnig í fjarmeðferð. Ég vinn með börn, líkama og sál hvers og eins.

Netfang: svandishnh1@gmail.com
Sími: 8673048
Staður: Reykjanesbær

Svava Halldórsdóttir

Svava Halldórsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég heiti Svava og er ljósberi og veiti heilandi leiðsögn í heilun og dáleiðslu. Ég hef lært dáleiðslu, heilun, reiki og er Englareikimeistari. Hlakka til að vinna með þér og endilega kíktu á heimasíðuna mína www.heilandileidsogn.com.

Netfang: svavahall@gmail.com
Sími: 8678871
Vefsíða: www.heilandileidsogn.com
Staður: Höfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður

Una Berglind Þorleifsdóttir

Una Berglind Þorleifsdóttir

Engla Reiki meistari

Ég kynntist andlegum málum hjá móður minni, Þrúði Jónsdóttur (Rúrý), sem er mikill heilari og lækningamiðill. Ég fetaði mín fyrstu spor 2007 þegar ég fór í nám í svæða- og viðbragðsmeðferð sem var eins árs bók- og verklegt nám í VMA. Þá var ekki aftur snúið og ég hef bætt við mig fleiri heildrænum meðferðum síðastliðin ár; OPJ orkupunktajöfnun, Reiki, Engla Reiki og Bowen bandvefslosun. Ég vinn á stofunni minni en fer einnig út á land. Ég hef mikla unun við að starfa við það sem mér finnst vera mitt lífsverkefni. Ég vinn mjög mikið eftir mínu innsæi og tilfinningu og hef mikla trú á andlegri leiðsögn.

Netfang: unaberglind@gmail.com
Sími: 6997006
Staður: Hvolsvöllur/Reykjavík

Þurý Gísla

Þurý Gísla

Engla Reiki meistari

Hæ ég heiti Þurý. Ég lauk 3. og 4. stigi Engla Reiki í mars 2022. Ég elska að vinna með orkunni frá englunum og öllum þeim ljóssins verum sem vinna með okkur í Engla Reikinu, það er dásamlegt upplifa þann ávinning, upplifanir og orkutengingar sem skjólstæðingar mínir finna fyrir í heiluninni og eftir hana. Ég er með vinnurými í Hveragerði og einnig er hægt að panta fjarheilun, þá ert þú í þínu rými heima hjá þér og ég í mínu rými. Fjarheilun er ekki síður áhrifamikil og hvet ég þig til að prufa ef Hveragerði er of langt í burtu frá þér. Ég hlakka til að taka á móti þér og vinna með þér, ef þú ert með einhverjar spurningar þá hvet ég þig til að hafa samband.

Netfang: thurygisla@gmail.com
Sími: 8475595
Vefsíða: www.myselflovestudio.com
Staður: Hveragerði