Sálarfóður

Sálarfóður

Samverustund

Sálarfóður er fyrst og fremst hugsað sem gefandi stundir þar sem við njótum samveru við hvort annað og hugsanlega lærum eitthvað nýtt um okkur sjálf og heiminn í leiðinni.

Hver stund er einstök þar sem unnið er með ólík viðfangsefni, og nýtt ýmis tæki og tól sem geta hjálpað okkur að efla andlegar tengingar okkar og traust til þeirra vera sem við vinnum með. Þannig eflum við einnig tenginguna við okkur sjálf og eigum auðveldara með að hlusta á rödd hjartans.

Tímarnir henta bæði þeim sem eru að taka fyrstu skrefin á sinni andlegu braut, og þeim sem lengra eru komnir, því það er jú alltaf gagnlegt að rifja upp og endurmeta það sem áður hefur verið lært. Þannig styrkjum við okkur og eflum í hverju skrefi.

Um kennslu og leiðsögn sjá leiðsögukonur Starcodes Academy.

Sálarfóður stundirnar verða á Krókhálsi 5A, 110 Reykjavík nema annað sé tekið fram. Við erum á 2. hæð til vinstri og er lyfta í húsinu. Það eru næg bílastæði og strætó stoppar við húsið hjá okkur.

Við hlökkum til að eiga með ykkur gefandi stundir.