Þín persónulega

umbreyting

Ferðalag sjálfsskoðunar

Hvernig varð þetta námskeið til?

Námskeiðið er byggt á orkustöðvavinnu og er sambland af persónulegri leiðsögn, hugleiðslum, fræðslu, hópavinnu, samveru, dagbókarskrifum og fjölbreyttum heimaverkefnum.

 
Á námskeiðinu ÞÍN PERSÓNULEGA UMBREYTING eru þátttakendur leiddir í ferðalag sjálfskoðunar þar sem m.a. er spurt:

  • Hver er ég?
  • Hverjir eru draumar mínir í lífinu og á hvaða hátt er ég að vinna að því að láta þá rætast?
  • Hvað er helst að hindra mig í að lifa því lífi sem mig langar að lifa? Er ég að standa í vegi fyrir sjálfri mér á einhvern hátt?
  • Hvernig get ég lágmarkað þessar hindranir eða hreinlega rutt þeim úr vegi?
  • Hvernig get ég æft mig í að setja bæði sjálfri mér og öðrum heilbrigð mörk?
  • Hvað get ég gert til að vera besta útgáfan af sjálfri mér og lifa í sátt og samlyndi við allt sem er?

Öllu efni námskeiðsins, hugleiðslum, fræðslu o.s.frv. var miðlað af Hrabbý og Ölmu undir leiðsögn Metatron erkiengils sem hefur yfirumsjón með prógramminu. Námskeiðið er því einstakt í sinni röð og aðeins í boði á Íslandi enn sem komið er.

Fyrir hverja er námskeiðið?

Námið er fyrir öll þau sem tilbúin eru að skoða sig á heiðarlegan og opinskáan hátt, vinna í hindrunum sínum, efla tengingar sínar við alheiminn og stefna í átt að draumum sínum. Æskilegt er að þátttakendur hafi reynslu af hugleiðslu og séu á einhvern hátt komnir af stað í sinni sjálfsvinnu.

Umsóknarfrestur fyrir næsta skólaár er 15. ágúst en sérstakt snemmskráningartilboð er fyrir þau sem skrá sig fyrir miðnætti 20. júlí næstkomandi (sjá nánar hér fyrir neðan).

Smelltu á hnappinn til að fá enn meiri upplýsingar í tölvupósti.

Hvað er námskeiðið langt?

Hvað er innifalið?
Námskeiðið stendur yfir í 9 mánuði og á þeim tíma eru níu staðlotur (14 dagar alls), níu Zoom fundir, sex einstaklingstímar og fjöldi heimaverkefna. Námskeiðið er 140 kennslustundir auk þess sem gert er ráð fyrir um 400 stundum í heimavinnu. Námskeiðinu fylgja hátt í 60 hljóðupptökur af fræðsluefni, æfingum og hugleiðslum, innrammaður persónulegur ljóskóði, kristall, dagbók, lokað samfélag á Facebook til stuðnings og persónulegur stuðningur í gegnum allt námið.

Skólaárið 2024-2025

Hér má sjá dagsetningar fyrir staðlotur og zoomfundi næsta skólaárs. Skyldumæting er á allar staðlotur og zoomfundi.  

  • 6.-8. september (fös-sun)
  • 5. október (lau)
  • 1.-2. nóvember (fös/lau)
  • 29.-30. nóvember (fös/lau)
  • 11. janúar (lau)
  • 31. janúar – 1. febrúar (fös/lau)
  • 1. mars (lau)
  • 5. apríl (lau)
  • 2.-4. maí (fös/lau)

Zoomfundir eru eftirfarandi miðvikudaga frá 17:30 – 18:45

  • 18. september
  • 16. október
  • 13. nóvember
  • 11. desember
  • 22. janúar
  • 12. febrúar
  • 12. mars
  • 16. apríl
  • 14. maí

Umsóknarfrestur og verð

Umsóknarfrestur fyrir skólaárið 2024-2025 rennur út þann 15. ágúst 2024 en opið er fyrir umsóknir núna. Allar umsóknir eru lagðar fyrir Metatron erkiengil sem velur þátttakendur í hópinn. Umsóknir eru afgreiddar á 4ra vikna fresti en öllum umsóknum verður svarað fyrir 20. ágúst 2024.

Námskeiðsgjald eru 636.000 krónur en 125.000 króna staðfestingargjald greiðist strax við skráningu. Hægt er að dreifa eftirstöðvum námskeiðsgjalda mánaðarlega frá skráningu en síðustu greiðslu skal inna af hendi í byrjun apríl 2025.

Staðfestingargjald er óafturkræft.

Snemmskráningartilboð! Þau sem skrá sig fyrir miðnætti 20. júlí fá 41.ooo króna afslátt af námskeiðsgjöldum og greiða því alls 595.000 krónur.

Athugið að sum stéttarfélög niðurgreiða námskeiðsgjöld sinna félagsmanna.

Við vekjum athygli á kynningarfundi sem við héldum þann 10. apríl, þar var farið nánar yfir uppbyggingu  námskeiðsins og gefinn kostur á að spyrja spurninga. Þú getur horft á kynningarfundinn hér.

Hafir þú áhuga á að heyra af reynslu fyrri þátttakanda í náminu hvetjum við þig til að hafa samband við okkur og við tengjum ykkur saman. 

Þín persónulega umbreyting er aðeins í boði á Íslandi eins og er. Ef þú hefur áhuga á því að vita meira um námskeiðið, hafðu þá vinsamlegast samband við okkur.

Ég er svo miklu ánægðari og hamingjusamari með mitt líf í dag sem smitar til barna og barnabarna minna. Gagnvart vinum þá hafa sumir á orði að ég sé breytt til hins betra, mun jákvæðari, brosmildari og öll hressari. Þeir sem vita að ég fór á þetta námskeið sjá að það gerði mjög góða hluti fyrir mig.

Guðrún María

Er glaðari og ánægðari, horfi öðrum augum á lífið, hvað get ég gert í dag til að breyta viðhorfi mínu til batnaðar. Farin að jarðtengja mig og hreinsa mig og allt í kringum mig, er búin að gera þetta síðan við byrjuðum.

Guðrún Guðjóna

Sjáðu hvað þátttakendur okkar hafa að segja um þetta námskeið.