Description
Á námskeiðinu förum við yfir ýmist praktísk atriði varðandi að vinna með englum, meisturum og gyðjum. Námskeiðið samanstendur af þremur myndböndum, það fyrsta fjallar um vinnu með englum, annað um meistara og það þriðja um gyðjur. Einnig fylgja þrjár hugleiðslur sem nýtast til að tengjast ljósverunum.
Við hvetjum alla til að nýta hugleiðslurnar sem námskeiðinu fylgja aftur og aftur til að tengjast mismunandi englum, meisturum og gyðjum. Í hugleiðslunum er hlustandinn leiddur áfram til að kynnast orku þeirrar ljósveru sem vinna á með og til að kynnast ljósverunni betur. Hugleiðslurnar eru praktískt tól til að auka næmni og styrkja tengsl við ljósverur sem eru okkur ómæld uppspretta stuðnings og kærleika í daglega lífinu.