Hádegishugleiðsla á aðventu – 11. desember 2024 – MYNDBAND

Það er mikilvægt að við gefum okkur tíma til að finna frið og ró á aðventunni. Í þessari hugleiðslu heimsækjum við helli umbreytingarlogans og leyfum honum að leika um okkur, bæði til að hreinsa orkustíflur og til að færa okkur yndislega kærleiksorku. Njótið vel!

Næstu miðvikudaga gefum við spjallinu okkar smá frí en viljum í staðinn leiða þig inn í kyrrð og ró í hádegishugleiðslu í beinni útsendingu á Facebook og Instagram klukkan 12:00 á miðvikudögum fram að jólum. Í amstri desember mánaðar er ekkert betra en að staldra aðeins við, njóta og tengjast sjálfum sér og skapa þannig meiri innri ró. Staldraðu aðeins við og vertu með okkur kl. 12 á næstu miðvikudögum í beinni.

Við hvetjum þig til að fylgja okkur á samfélagsmiðlunum okkar Facebook, Instagram og YouTube. Sjáumst þar!

 

Share This Post