Umsagnir viðskiptavina

Umsagnir viðskiptavina

Hvað segja viðskiptavinir okkar?

Leiðsögukonurnar gerðu þetta einstaklega vel, af mikilli næmni á hópinn. Allt var mjög skipulagt, notalegt og gott. Ég fæ ekki séð að það hefði verið hægt að gera það betur.

Elínborg

Í dag horfi ég fram á veginn, finnst ég ekki eins föst í farinu. Breytt viðhorf gagnvart öðru fólki. Finnst alltaf vera að upplifa meira og meira.

Dagný

Ég er svo miklu ánægðari og hamingjusamari með mitt líf í dag sem smitar til barna og barnabarna minna. Gagnvart vinum þá hafa sumir á orði að ég sé breytt til hins betra, mun jákvæðari, brosmildari og öll hressari. Þeir sem vita að ég fór á þetta námskeið sjá að það gerði mjög góða hluti fyrir mig.

Guðrún María

Er glaðari og ánægðari, horfi öðrum augum á lífið, hvað get ég gert í dag til að breyta viðhorfi mínu til batnaðar. Farin að jarðtengja mig og hreinsa mig og allt í kringum mig, er búin að gera þetta síðan við byrjuðum.

Guðrún Guðjóna

Námskeiðið hefur nýst mér vel, ég horfi á veröldina með meiri víðsýni, hef aukið sjálfstraust og í betra jafnvægi til þess að takast á við brekkur sem koma í lífinu. Tjái mig meira út frá því hver ég er og ekki eins hrædd við gagnrýni.

Arndís

Er vakandi og tengd en ekki fjarlæg mér sem ég var oft og í öðrum hugarheimi. Nú er ég í núinu og nýt ferðalagsins sem ég er í á jörðinni.

Sandra

Það hefur verið svo undursamlegt að kynnast öllum og finna loksins að hér í þessum hópi þátttakenda og leiðsögukvenna var ég komin heim. Hér er í þessum hópi hef ég getað tjáð mig umbúðalaust og mér hefur hlotnast sú gjöf að geta opnað inn á mínar tilfinningar og líðan og fundið samkennd og skilning. Á sama hátt hef ég getað gefið það sama til hinna þátttakendanna.

Þuríður