Hjarta Skotlands – Leiðarlýsing

Upplifunarferð fyrir hjarta og sál

Skotland

DAGUR 1 – Ferðast til Skotlands (4. júní)

Hópurinn sóttur á Glasgow flugvöll eða á aðallestarstöðina í Glasgow. Ekið yfir hálöndin og stoppað á fallegri heiði til að tengja við Hjarta Skotlands, borðað nesti á leiðinni. Farið til Nairn þar sem við snæðum kvöldverð áður en við höldum í náttstað á hinu sjarmerandi gistihúsi Invernairne þar sem við gistum næstu 5 nætur.

DAGUR 2 – Samvera í Nairn (5. júní)

Við verjum deginum á gistihúsinu og í nágrenni þess við að tengja okkur saman, hugleiða og setja okkur ásetning fyrir ferðalagið framundan. Hádegisverður á hótelinu og svo sameiginlegur kvöldverður á veitingastað í Nairn.

DAGUR 3 – Clava Cairn og Cawdor kastali (6. júní)

Heimsókn í Clava Cairn steinahringina og grafhýsin, þar sem við tengjum okkur við staðinn og vinnum orkuvinnu. Þaðan er haldið í Cawdor kastala þar sem við fáum leiðsögn um kastalann, borðum hádegisverð og hugleiðum í kastalagarðinum. Eftir heimkomu er frjáls tími og kvöldverður á eigin vegum í Nairn.

Skotland
Skotland
Skotland
Skotland
Skotland

DAGUR 4 – Findhorn Eco Village og skoskur shaman ( 7. júní)

Heimsókn í  Findhorn Eco Village. Við fáum leiðsögn um þetta sögufræga þorp, heimsækjum listafólk, hugleiðum í einu af mörgum hugleiðslurýmum þorpsins og snæðum hádegisverð á Phoenix Café. Seinnipart dags höldum við á vit ævintýranna með skoskum shaman sem mun leiða okkur í einstaka athöfn rétt við þorpið. Að athöfn lokinni keyrum við í nágrannaþorpið Forres þar sem hópurinn fær frjálsan tíma til að skoða sig um ásamt því að fá sér kvöldverð á eigin vegum. Að því loknu er haldið til baka í náttstað.

DAGUR 5 – Jurtatínsla og smyrslgerð (8. júní)

Þennan dag byrjum við daginn á morgunhugleiðslu en síðan gefst frjáls tími fram til u.þ.b. 13:00 þegar formleg dagskrá hefst. Við verjum miðbiki dagsins í í Nairn og nágrenni við að kynnast náttúrunni á glænýjan hátt þar sem við fáum kennslu um villtar skoskar jurtir sem við tínum og búum til jurtasmyrsl úr.  Frjáls tími er svo aftur seinnipartinn sem hægt er að verja í þorpinu eða á ströndinni. Kvöldverður á eigin vegum.

DAGUR 6 – Loch Ness, Loch Tarff og Fort Augustus (9. júní)

Hér kveðjum við Invernairne og færum okkur í annan náttstað.

Fyrrihluti dags er tileinkaður hinu stórbrotna Loch Ness, þar sem við tengjumst orku þess og Nessie sjálfri. Eftir að snæða skipulagðan hádegisverð á huggulegu sveitakaffihúsi höldum við áfram til Loch Tarff. Seinnihluta dags verjum við svo í hinu sjarmerandi þorpi Fort Augustus, þar sem hópurinn fær frjálsan tíma til að skoða sig um og snæðir kvöldverð á eigin vegum. Að kvöldverði loknum er haldið í náttstað í An Spiris  (Dundreggan Rewilding Centre) þar sem við gistum næstu tvær nætur.

DAGUR 7 – Corrimony Cairns og Glen Affric (10. júní)

Við byrjum daginn á heimsókn í  steinahringinn við Corrymony Cairns þar sem við hugleiðum og vinnum orkuvinnu. Þaðan höldum við djúpt inn í Glen Affric friðlandið þar sem við verjum deginum við að tengjast töfrandi náttúru friðlandsins. Við borðum nesti í friðlandinu og á leiðinni til baka í næturstað er sameiginlegur kvöldverður á góðum veitingastað.

DAGUR 8 – Flogið heim til Íslands (11. júní)

Hér tökum við daginn snemma og keyrum rakleiðis til baka til Glasgow, en áætlað er að vera á Glasgow flugvelli upp úr kl. 12:00 fyrir þau sem eiga flug til baka með Icelandair þann dag. Þau sem ætla sér að vera lengur eða eiga önnur flug sama dag, geta valið að bíða á flugvellinum eða vera skilin eftir á lestarstöðinni í Glasgow.

SKRÁNING

Til að skrá þig í ferðina biðjum við þig að fara í gegnum tvö skref:

1. skref – Ýttu á hnappinn Skrá mig í ferð! Fylltu út eyðublaðið sem birtist og ýttu á SENDA. Þetta eyðublað er einungis fyrir okkur til að halda utan um skráningar. Aðeins er hægt að skrá einn í einu. Til að tryggja plássið þarftu að taka skref númer 2 hér fyrir neðan (þar er hægt að bóka fleiri í einu).

2. skref – Ýttu á hnappinn Kaupa ferð hér! Hnappurinn leiðir þig á skráningar- og greiðslusíðu TripOraganiser Scotland Ltd. þar sem þú slærð inn upplýsingarnar þínar og gengur frá greiðslu.

Eftir skráningu færð þú tölvupóst frá okkur með frekari upplýsingum ásamt hlekk sem leiðir þig inn á skráningar- og greiðslusíðu TripOrganiser Scotland Ltd. Þú getur því valið um hvora leiðina þú notar.

ATH! Þú hefur ekki tryggt þitt pláss í ferðinni fyrr en báðum skrefum er lokið. 

Skotland
Skotland