Hvað er Starcodes Academy?

Hvað er

Starcodes Academy?

Starcodes skólinn var skapaður af Ölmu og Hrabbý snemma árs 2020 eftir að Hrabbý byrjaði að miðla ljóskóðum frá hinu forna Atlantis. Þeim var sagt af verum ljóssins að þær þyrftu að vinna frekar með ljóskóðana og byrjuðu því afla sér frekari upplýsinga með því að miðla efni frá Metatron erkiengli og öðrum ljósverum. Fljótlega kom í ljós að um var að ræða kerfi sem þær voru beðnar um að nýta til að styðja aðra við að umbreyta lífi sínu og lifa sinn æðsta tilgang. Þetta leiddi þær Ölmu og Hrabbý á 18 mánaða ferðalag þar sem þær miðluðu fræðsluefni, hugleiðslum og öðru efni fyrir níu mánaða prógramm.

Á þessum tíma fóru þær sjálfar þrisvar sinnum í gegnum alla sjálfsvinnuna sem fylgir námskeiðinu og var það sannkölluð rússibanareið! Á þessu ferðalagi þurftu þær að vinna í fullkomnu trausti á alheiminn því oft var ekki ljóst hvert stefndi. Treysta þurfti því að leiðsögn fyrir hvert skref ferðalagsins kæmi þegar þær væru tilbúnar að stíga það og upplifðu þær báðar afar sterkt að í gegnum þessa vinnu væru þær loks að lifa sinn æðsta tilgang. Þannig fæddist námskeiðið Þín persónulega umbreyting, lykilvara Starcodes Academy.

Hlutverk okkar:

Við eflum þátttakendur okkar til að umbreyta tilveru sinni í gegnum heiðarlega speglun, heilun, sköpun og (sam)tengingar.

Sýn okkar:

Starcodes skólinn styður jörðina og mannkynið á uppstigningarferðalagi sínu með því að efla fólk til að ná æðstu möguleikum sínum og lifa sinn tilgang, með ljóskóða og æðri leiðsögn sem okkar lykil tæki.

Gildin okkar

Við eflum þátttakendur okkar til að umbreyta tilveru sinni í gegnum heiðarlega speglun, heilun, sköpun og (sam)tengingar.

Heilindi

Heilindi eru lykilatriði í allri sjálfsvinnu og þróun.

Umbreyting

Persónulegri umbreytingu er náð í gegnum heilun, sjálfsspeglun, sköpun og fjölbreytileika sem gerir okkur kleift að upplifa gleði, velsæld og okkar eigin mikilfenglega (eða stórbrotna) kraft.

Tenging

Sönn tenging við okkur sjálf, æðri leiðsögn og allt sem er færir okkur sanna tilfinningu þess að tilheyra og sterkan sjálfskærleik.

Viltu heyra frá okkur?

Með því að gerast áskrifandi að fréttabréfinu okkar getur þú fylgst með starfseminni hjá okkur, séð hvaða námskeið og viðburðir eru á döfinni á næstunni, séð hvenær við birtum nýjar greinar og myndbönd á blogginu okkar. Við hvetjum þig til að gerast áskrifandi og taka þátt í ferðalaginu með okkur.

Við elskum að fjalla um áhugaverð viðfangsefni tengd persónulegri umbreytingu, andlegum málum og þeirri áskorun sem við stöndum öll frammi fyrir að vera andlegar verur í jarðneskum líkama. Við hlökkum til að tengjast þér betur!