Andleg Vernd

  • Vilt þú vinna betur með orkuna þína?

  • Styrkja þína vernd og halda betur þinni orku fyrir þig?

  • Minnka áhrif af orku annarra á þig í daglega lífinu?

  • Eða kannski bara rifja upp góðar venjur þegar kemur að andlegu hreinlæti og mögulega kynnast nýjum aðferðum sem gætu hentað þér vel í síbreytilegri orku.

Andleg Vernd

  • Vilt þú vinna betur með orkuna þína?

  • Styrkja þína vernd og halda betur þinni orku fyrir þig?

  • Minnka áhrif af orku annarra á þig í daglega lífinu?

  • Eða kannski bara rifja upp góðar venjur þegar kemur að andlegu hreinlæti og mögulega kynnast nýjum aðferðum sem gætu hentað þér vel í síbreytilegri orku.

Þá er Andleg vernd námskeiðið Fyrir  þig

Á námskeiðinu fjalla þær Alma og Hrabbý frá Starcodes skólanum um andlega vernd frá ýmsum sjónarhornum í þremur námskeiðshlutum. Í hverjum hluta er fræðsla um viðfangsefnið og í kjölfarið er spurningum þátttakenda svarað og svo leitt inn í praktískar æfingar.

Þemu sem fjallað er um á þessu námskeiði

Námskeiðið Andleg vernd er í þremur hlutum sem allir hafa sitt þema. Það fyrsta er Jarðtenging, það næsta Hreinsun og þriðja Vernd

Jarðtenging er þema fyrsta hlutans en þar ræðum við mismunandi leiðir til að jarðtengja og hvernig okkar þörf fyrir jarðtengingu getur breyst með hækkandi tíðni.

Hreinsun er þema annars hlutans en þar förum við yfir mismunandi leiðir til að hreinsa okkur og umhverfi okkar með aðstoð ljósvera.

Vernd er þema þriðja hlutans en þar förum við yfir mismunandi aðferðir við að vernda okkur í daglega lífinu.

Fyrir hverja er þetta námskeið?

Námskeiðið hentar bæði þeim sem eru að stíga sín fyrstu skref og þeim sem lengi hafa verið í andlegum málum. Við nálgumst efnið með það í huga að tíðnin breytist stöðugt og um leið geta þarfir okkar breyst, við heyrum af nýjum aðferðum sem mögulega henta okkur betur en þær gömlu.

Námskeiðið kostar 6.900 krónur og þú getur pantað þinn aðgang hér fyrir neðan. 

Viðbótarupplýsingar: Námskeiðið er greitt að fullu við kaup.