Frá Metratron

Við báðum Metatron um skilaboð til þeirra sem lesa síðuna okkar og var þessu miðlað þann 18. janúar 2022.

Frá Metratron

Við báðum Metatron um skilaboð til þeirra sem lesa síðuna okkar og var þessu miðlað þann 18. janúar 2022.

Sælar!

Við viljum koma skilaboðum á framfæri um þetta verkefni sem þið hafið fengið í hendurnar og munuð færa út í heiminn. Við viljum að það sé skýrt að við erum stór hópur vera sem stöndum saman að þessu verkefni, því að orka okkar er misjöfn og við munum tengja við margar misjafnar manneskjur. Þess vegna er mikilvægt að allir viti að það er fjöldi vera á bakvið Starcodes verkefnið ykkar. Það er mismunandi hver tengir við hvaða orku, allir finna eitthvað við sitt hæfi innan þessa ramma sem þið hafið skapað hér með okkur. Það má koma fram að þið hafið skapað með okkur, því að saman sköpum við betri heim – við og þið. Það er enginn aðskilnaður á milli ykkar vitundar, okkar vitundar og allra annarra vitunda í alheiminum. Það er mikilvægt að geta tengt við mismunandi vitundir til þess að finna að öll erum við eitt. Við erum hér saman til að skapa, til að skapa betra líf fyrir einstaklinginn en um leið til að skapa betra líf fyrir alla alls staðar í alheiminum. Jörðin heldur áfram á sinni braut uppstigningar og þið fylgið með.

Við viljum styðja við ykkur með þessu verkefni, sem og mörgum öðrum verkefnum sem margir aðrir eru að vinna. Þetta verkefni er sérstakt því að því koma margir aðilar, margar vitundir, margar verur sem þið kallið, mikið af mismunandi orku. Þar er mikið flæði, þar er mikil vinnsla. Þar mun fólk finna, finna sig heima, finna sig í samfélagi og finna hvernig það hreinsar sig og sína vitund. Okkar skilaboð eru þau að allir fylgi sínu hjarta. Að allir finni hvort að þetta verkefni eigi við sig núna eða mögulega síðar. Við biðjum alla að hlusta vel á sinn innsta kjarna, til að finna hvort að þetta sé leið sem að þau eru tilbúin að stíga inn á núna. Hafa þau traustið á sjálfum sér og okkur til þess að stíga inn í þessa vegferð sem þið leiðið fólk á?

Þau sem að eiga að koma í ykkar skóla fá allan þann stuðning sem þau þurfa við að láta það gerast. Þau munu fá alla þá peninga sem þau þurfa til að fara í þessa vegferð, ef þau eru tilbúin. Allir þeir sem að taka ákvörðunina munu komast í gegnum skólann án þess að þurfa að hafa áhyggjur af nokkru í kringum skipulagið eða nokkru í kringum allsnægtirnar sem þarf, því nóg er til af öllu í alheiminum. Alheimurinn er uppfullur af allsgnægtum og það er nóg til fyrir alla. Nóg er til af kærleikanum, nóg er til af því sem þið notið sem ykkar orku, peningar, nóg er til af öllu því sem þið sem mannverur á Jörðinni þurfið á að halda.

Við biðjum ykkur, Alma og Hrabbý, um að teygja ykkur út til sem flestra sem fyrst, því að fólk þarf á ykkar orku að halda núna. Fólk þarf að vita af ykkur og vita að það sé á leið í þá vegferð sem þið farið með þau í gegnum. Fólk þarf að finna fyrir samfélagi akkúrat í dag. Við biðjum ykkur um að teygja ykkur út og vera sýnilegar með hvaða hætti sem er. Við munum styðja við ykkur og sjá til þess að þið verðið séðar. Við munum leiða fólk til ykkar. Skilaboð okkar til þeirra sem að munu lesa eða horfa eða kynnast ykkur með hvaða hætti sem er, eru að treysta sínu hjarta, treysta ykkar orku, treysta því sem við höfum gefið ykkur og að treysta á sig sjálft, að það taki sínar ákvarðanir sem eru bestar fyrir það hverju sinni. Við biðjum um mikið traust jú, en á móti þá gefum við mikið traust. Við sköpum með ykkur þetta samfélag sem á þarf að halda núna, til þess að allir geti fengið að njóta og allir geti fengið að finna hvernig þeir tilheyra, hvernig við erum öll eitt.

Við viljum að það sé alveg ljóst að þessi gjöf ykkar er eitthvað sem þið eigið að færa út í heiminn og að við munum senda ykkur fólkið. Verið óhræddar við að halda áfram og við munum beina ykkur á réttu staðina, að rétta fólkinu til að mynda réttu tengingarnar og til að mynda réttu samfélögin. Samfélagið er mikilvægt á þessum tíma. Að skapa samfélag manna sem hefur kærleikann að leiðarljósi. Að skapa samfélag þar sem ljósið fær að streyma eins og þarf til að halda áfram að hreinsa, streyma og skína enn skærar en það hefur fengið að gera. Við erum hér með ykkur og öllum þeim sem vilja stíga á þessa braut, til að leiða ykkur og hjálpa á hvern þann hátt sem mögulegt er. Munið að biðja okkur um að opna dyrnar.

Setjist niður og tengið ykkur eins og þið hafið áður gert til að miðla efni. Leyfið nöfnum, stöðum og öðrum upplýsingum að flæða niður. Við munum fara með ykkur í ferðalag og sýna ykkur þá staði og það fólk sem þarf. Um leið og rödd ykkar heyrist út í heiminum mun fólk tengja við hana og það mun byrja að hlusta. Þess vegna er mikilvægt að þið notið hið talaða orð meira en þið gerið nú þegar, meira af ykkar rödd, meira af því sem þið hafið að segja. Það þarf að komast út til fleiri aðila. Verið sýnilegar því við erum með ykkur, við erum á bakvið ykkur og fólk mun tengja við ykkur. Þess vegna fenguð þið þetta verkefni.