Persónulegir ljóskóðar

Hvað eru

persónulegir ljóskóðar?

Öll eigum við okkar PERSÓNULEGU LJÓSKÓÐA, sem við getum einnig kallað okkar persónulegu merköbu/ljósfarartæki eða ljósfingrafar. Persónulegi ljóskóðinn inniheldur mögulega tengipunkta við óteljandi ljósnet Móður Jarðar og Alheimsins. Suma þessara tengipunkta getum við virkjað sjálf með því að setja einbeitingu okkar á þá t.d. í gegnum hugleiðslu og með því tengt og virkjað tengingar okkar við ljósnetin. Aðrir tengipunktar þarfnast einhvers konar tendrunar eða vígslu til að virkjast að fullu. Með því að tengjast persónulega ljóskóðanum okkar meðvitað byrjum við að virkja marga þessara tengipunkta og hækka tíðnina okkar í átt að uppstigningu sem gerir kóðana að frábæru verkfæri til sjálfsþróunar og sjálfseflingar.

Á námskeiðinu „Þín persónulega umbreyting“ virkjum við tendrunarljóskóða sem hafa verið í orkukerfum okkar frá tímum Atlantis og tengjum þá við persónulega ljóskóðann þinn. Tendrunarferlið virkjar persónulega kóðann þinn innan frá sem opnar möguleika þína á mun sterkari tengingum við sjálfa/n þig og allt sem er.

Persónulegir ljóskóðar
Persónulegir ljóskóðar

Þú þarft þó ekki fulla tendrun á persónulega ljóskóðanum í gegnum tendrunarljóskóða til að hefja ferðalagið, heldur er margt sem við getum gert sjálf. Ef hjartað þitt kallar eftir persónulega ljóskóðanum þínum eða þig langar að gefa einhverjum sem þér þykir vænt um þessa gjöf sterkari tenginga getur þú pantað kóða hér.

Með hverjum kóða kemur leidd hugleiðsla sem hjálpar þér að tengjast kóðanum og orku hans betur. Hugleiðsluna þarf að gera í 7 daga í röð eftir að þú hefur fengið kóðann í hendurnar. Vinsamlegast athugið að kóðanum fylgir engin miðlun eða túlkun af neinu tagi önnur en hugleiðslan því markmið er að finna fyrir kóðanum og uppgötva hann, en ekki skilja hann í gegnum rökhugsun.

Persónulegu ljóskóðarnir eru teiknaðir/miðlað af listakonunni Hrabbý sem vinnur í náinni tengingu við erkiengilinn Metatron en hann hefur yfirumsjón með allri vinnu okkar hjá Starcodes Academy.

Hvað eru

persónulegir ljóskóðar?