Þjónusta

Við styðjum þig við að umbreyta lífi þínu

Námskeið

Öll okkar lengri og styttri námskeið eru sett saman sem tæki fyrir þig til að umbreyta þínu lífi á einn eða annan hátt. Hér getur þú lesið meira um námskeiðin okkar svo sem Þín persónulega umbreyting, Engla Reiki og fleira.

Orkusteinar og spil

Orkusteinar er lítil verslun sem við rekum frá bækistöðvum okkar í Kópavogi. Við bjóðum upp á gott úrval kristalla og leiðsagnarspila auk annars varnings svo sem andlegra bóka, kertastjaka, skarts og fleira.

Persónulegir leiðsagnartímar

Í persónulegum leiðsagnartímum notum við reynslu okkar, þekkingu og andlega leiðsögn til að hjálpa þér að ákveða næstu skref varðandi ákveðin viðfangsefni eða áskoranir í lífi þínu.

Ljóskóðar

Ljóskóðar hafa fylgt mannkyninu frá upphafi tíma og eru eldri en Jörðin sjálf. Til eru margar tegundir ljóskóða sem allir hafa sinn einstaka tilgang, vinna á mismunandi tíðni og í ólíkum víddum.

Hvað getum við boðið þér?

Hrabbý og Alma hafa lengi verið tengdar hinum andlega heimi og elska að deila reynslu sinni og þekkingu með öðrum. Við hvetjum ykkur til að hafa samband ef þið hafið áhuga á sérsniðnu námskeiði eða fyrirlestri fyrir þinn hóp, annað hvort í eigin persónu eða á vefnum.

Hugleiðslur

Að stunda reglulegar hugleiðslur hefur hjálpað okkur báðum mikið að takast á við lífið og verkefni þess og eru þær því eitt mest nýtta verkfærið í okkar persónulegu verkfærakistum.