Lota 7 (staðlota) á námskeiðinu Lifðu þinn tilgang sem er sjálfstætt framhald námskeiðsins Þín persónulega umbreyting.
Tilgangur námskeiðsins er að þátttakendur:
- komi auga á og hreinsi þær hindranir sitja fastar í öllum líkömum s.s. fastar tilfinningar, bæði meðvitaðar og ómeðvitaðar
- tengist meðvitað í gegnum ástundun og æfingar ytri orkukerfum s.s. orkukerfum Jarðarinnar, annarra sólkerfa og pláneta (sérstök áhersla á Síríus), Atlantis og annarra fornra menningarheima til að vinna enn frekar með orkuna, efla tengingar og stækka vitund sína og skilning
- komi á vinnusambandi á milli sín og þeirra ljósvera sem að verkefninu koma
- vinni markvisst í gegnum æfingar og ástundun að því að finna leiðir til að ganga veginn sinn og lifa sinn sanna tilgang