Fullt tungl í bogmanni 23. maí – Finnum gleðina og hlustum á hjartað! – MYNDBAND

Það er nóg um að vera í himintunglunum þessa dagana með tilheyrandi orkubreytingum. Mjög öflugir sólstormar hafa geysað síðustu vikurnar sem hafa óneitanlega mikil áhrif á lífverur jarðarinnar, því gætu mörg okkar hafa upplifað óróleika í orku sinni og tilfinningum undanfarið. Nú bætist svo við tilfinningaríkt tungl bogmannsins sem er eldmerki og þá kemur margt áhugavert í ljós. Meira um það í myndbandinu! Gleðilegt fullt tungl!

Við hvetjum þig til að fylgja okkur á samfélagsmiðlunum okkar Facebook, Instagram og YouTube. Sjáumst þar!

 

 

Share This Post