Hreinsun og heilun Jarðarinnar

Jörðin okkar geymir í sér áru liðinna atburða, bæði góðra og slæmra, allt frá upphafi Jarðarinnar til dagsins í dag. Þung og erfið orka getur því setið í Jörðinni löngu eftir að atburðurinn er liðinn og valdið bæði henni og þeim sem hana ganga, í öllum víddum, erfiðleikum. Með samvinnu manna og vera er hægt að heila og hreinsa þessa orku og hjálpa Jörðinni að hækka tíðni sína.

Tengdu þig við Jörðina og spurðu hana hvaða staður þurfi heilun í þínu nágrenni. Farðu á staðinn (líkamlega eða í huganum) og kallaðu á drekana, erkienglana, einhyrningana og náttúruverurnar til að hjálpa þér að hreinsa gamla, erfiða og staðnaða orku. Þetta má t.d. gera á stöðum þar sem vart hefur verið við einhvers konar reimleika. Settu fram ásetning þinn um hreinsun og heilun og það mun vera gert.

Í hvert sinn sem þú tengist Móður Jörð í gegnum jarðarstjörnuna, ræturnar þínar, með því að mynda ljóssúlu inn í miðju Jarðar eða á hvern þann hátt sem þú kýst að jarðtengja þig, styrkir þú tengsl þín við hana. Við þurfum á orku Jarðarinnar að halda, að finna stuðning hennar og styrk en við getum líka gefið til baka og styrkt Jörðina á auðveldan hátt, með því að senda ljós og heilun til hennar í hvert skipti sem við jarðtengjum okkur.

Móðir Jörð er uppfull af styrk, stöðugleika, kærleika, krafti og friðsæld – allt á sama tíma. Hún vill gjarnan deila þessum gjöfum með okkur svo lengi sem við tengjum okkur meðvitað við hana.

Það er dásamlegt að ganga á berum fótum á Jörðinni eða leggjast niður og leyfa jarðarorkunni að streyma inn í líkamann.

Hver er þín uppáhalds aðferð við að tengjast Móður Jörð?

Hvað getur þú gert til að hjálpa til við að hreinsa Jörðina?

Við hlökkum til að tengjast ykkur í gegnum samfélagsmiðlana okkar Facebook og Instagram – @starcodesisl og @starcodesacademy og á YouTube.

Sjáumst þar!

Share This Post