Orkan er öflug þessa dagana þar sem sólmyrkva og nýtt tungl í hrúti bar upp á sama dag, sumardaginn fyrsta!
Um leið og margt og mikið er að gerast í orkunni eru tækifærin til breytinga mörg. Endir og nýtt upphaf er þemað. Við þurfum alls ekki að óttast breytingarnar heldur er þetta tíminn til að klára það sem hefur verið óleyst, losa um það sem við þurfum ekki á að halda og láta okkur dreyma um það sem við viljum skapa í lífinu næstu mánuði. Munum að staldra við ef orkan verður mikil, hlustum á innsæið og njótum ferðalagsins.
Við hvetjum ykkur til að fylgja okkur á samfélagsmiðlum (Facebook, Instagram og YouTube). Sjáumst þar!