Við höfum undanfarnar vikur oft verið spurðar að því hvernig formi fólk þurfi að vera í til að koma með okkur til Skotlands.
Til að taka af allan vafa segjum við skýrt hér og nú að það er nóg að vera fær um að rölta rólega styttri veglengdir, anda inn og út og njóta. Meira um það í myndbandinu hér fyrir neðan.
Hópurinn er smám saman að fyllast svo við hvetjum áhugasöm til að kynna sér ferðina og tryggja sér sæti sem allra fyrst. Þú getur lesið allt um ferðina okkar Hjarta Skotlands hér.
Við hvetjum þig til að fylgja okkur á samfélagsmiðlunum okkar Facebook, Instagram og YouTube. Sjáumst þar!